English

Guðröður Hálfdansson

Guðröður Hálfdansson, tók konungdóm eftir föður sinn. Hann var kallaður Guðröður hinn mikilláti en sumir kölluðu hann veiðikonung. 

Faðir hans var Hálfdan hinn mildi og matarilli

K1: Álfhildur, dóttir Alfarins konungs úr Álfheimum, en Álfheimar voru þá kallaðir millum Raumelfar og Gautelfar, og hafði Guðröður með henni hálfa Vingulmörk. Þeirra sonur:

    a) Ólafur er síðan var kallaður Geirstaðaálfur, konungur í Noregi.

K2: Ása Haraldsdóttir, synir þeirra:

    b) Hálfdan

    c) Óláfr.

En er Álfhildur var önduð þá sendi Guðröður konungur menn sína vestur á Agðir til konungs þess er þar réð fyrir. Sá er nefndur Haraldur hinn granrauði. Skyldu þeir biðja Ásu dóttur hans til handa konungi en Haraldur synjaði. Komu sendimenn aftur og sögðu konungi sitt erindi. En nokkurri stundu síðar skaut Guðröður konungur skipum á vatn, fór síðan með liði miklu út á Agðir, kom mjög á óvart og veitti upprás, kom um nótt á bæ Haralds konungs. En er hann varð var við að her var kominn á hendur honum þá gekk hann út með það lið sem hann hafði. Varð þar orusta og liðsmunur mikill. Þar féll Haraldur og Gyrður sonur hans. Tók Guðröður konungur herfang mikið. Hann hafði heim með sér Ásu dóttur Haralds konungs og gerði brullaup til hennar. Þau áttu tvá sonu. Hét annarr Hálfdan, en annarr Óláfr.

En þá er Hálfdan var veturgamall, það haust fór Guðröður konungur að veislum. Hann lá með skipi sínu í Stíflusundi. Voru þar drykkjur miklar. Var konungur mjög drukkinn. Og um kveldið er myrkt var gekk konungur af skipi en er hann kom á bryggjusporð þá hljóp maður að honum og lagði spjóti í gegnum hann. Var það hans bani. Sá maður var þegar drepinn.

En um morguninn eftir er ljóst var þá var maður sá kenndur. Var það skósveinn Ásu drottningar. Duldi hún þá ekki að það voru hennar ráð.

(HÁKONAR SAGA HERÐIBREIÐS)

Hafði Ása, kona hans, eggjat mann til at drepa hann, því at Guðröðr konungr hafði áðr drepa látit Harald konung, föður hennar, ok Gyrð, son hans. Ása in stórráða fór norðr á Agðir með Hálfdan, son sinn, hann var þá vetrgamall, ok helt hún þá því ríki, er faðir hennar hafði átt. Hálfdan óx upp með Ása, móður sinni, ok var hann brátt mikill maðr ok sterkr ok svartr á hár, ok því var hann kallaðr Hálfdan svarti.

Ættfræðisíða Systu, 2 janúar 2001

Nafnaskrá