Ása Haraldsdóttir

Ása hin stórráða Haraldsdóttir drottning, fædd um ca 800. 

Faðir hennar var Haraldur hinn granrauði.

M: Goðröður veiðikonungur Hálfdansson, synir þeirra:

    a) Hálfdan

    b) Ólafur

En er Álfhildur (fyrri kona Goðröðs) var önduð þá sendi Goðröður konungur menn sína vestur á Agðir til konungs þess er þar réð fyrir. Sá er nefndur Haraldur hinn granrauði. Skyldu þeir biðja Ásu dóttur hans til handa konungi en Haraldur synjaði. Komu sendimenn aftur og sögðu konungi sitt erindi. En nokkurri stundu síðar skaut Goðröður konungur skipum á vatn, fór síðan með liði miklu út á Agðir, kom mjög á óvart og veitti upprás, kom um nótt á bæ Haralds konungs. En er hann varð var við að her var kominn á hendur honum þá gekk hann út með það lið sem hann hafði. Varð þar orusta og liðsmunur mikill. Þar féll Haraldur og Gyrður sonur hans. Tók Goðröður konungur herfang mikið. Hann hafði heim með sér Ásu dóttur Haralds konungs og gerði brullaup til hennar. Þau áttu tvá sonu. Hét annarr Hálfdan, en annarr Óláfr.

En þá er Hálfdan var veturgamall, það haust fór Goðröður konungur að veislum. Hann lá með skipi sínu í Stíflusundi. Voru þar drykkjur miklar. Var konungur mjög drukkinn. Og um kveldið er myrkt var gekk konungur af skipi en er hann kom á bryggjusporð þá hljóp maður að honum og lagði spjóti í gegnum hann. Var það hans bani. Sá maður var þegar drepinn.

En um morguninn eftir er ljóst var þá var maður sá kenndur. Var það skósveinn Ásu drottningar. Duldi hún þá ekki að það voru hennar ráð. Hafði Ása, eggjat mann til at drepa Goðröð, því at hann hafði áðr drepa látit Harald konung, föður hennar, ok Gyrð, son hans.

(HÁKONAR SAGA HERÐIBREIÐS)

Ása in stórráða fór norðr á Agðir með Hálfdan, son sinn, hann var þá vetrgamall, og helt hún þá því ríki, er faðir hennar hafði átt.

Ættfræðisíða Systu, 28 desember 2000

Nafnaskrá