Ingiríður Rögnvaldsdóttir

Ingiríður Rögnvaldsdóttir

Faðir hennar var Rögnvaldur Ingason konungur í Svíþjóð.

M1: Heinrekur halti Sveinsson, d. 1134, sonur Sveins Sveinssonar Danakonungs, börn þeirra:

        a) Magnús konungur í Svíþjóð, kona hans var Brigíður Haraldsdóttir.

        b) Rögnvaldur jarl

        c) Búris

M2: Haraldur gilli Magnússon, sonur þeirra:

        d) Ingi krypplingur, Noregskonungur,

M3: Óttar birtingur, Hann var lendur maður og höfðingi mikill, þrænskur að ætt. Hann var mikill styrktarmaður Inga konungs meðan hann var í barnæsku. Sigurður konungur var ekki mikill vinur hans og þótti hann allt hallur undir Inga konung mág sinn. Óttar birtingur var drepinn norður í Kaupangi í einvígi um kveld er hann skyldi ganga til aftansöngs.

Barnsfaðir: Ívar sneis, sonur þeirra:

        e) Ormur 

M4: Árni á Stoðreimi, nefndur kóngsmágur, börn þeirra:

        f) Ingi, 

        g) Nikulás, 

        h) Filippus í Herðlu 

        i) Margrét, átti Björn bukkur en síðan Símon Kárason.

Ingiríður drottning og með henni lendir menn og hirð sú er Haraldur konungur hafði haft réðu það að hleypiskip var gert og sent norður til Þrándheims að segja fall Haralds konungs og það með að Þrændir skyldu taka til konungs son Haralds konungs, Sigurð er þá var norður þar og Sáða-Gyrður Bárðarson fóstraði, en Ingiríður drottning fór þegar austur í Vík. Ingi hét sonur þeirra Haralds konungs er var að fóstri þar í Víkinni með Ámunda Gyrðarsyni Lög-Bersasonar. En er þau komu í víkina var stefnt Borgarþing. Þar var Ingi til konungs tekinn. 

En er þau tíðindi komu norður til Þrándheims að Haraldur konungur var af lífi tekinn þá var þar til konungs tekinn Sigurður sonur Haralds konungs og hurfu að því ráði Óttar birtingur og Pétur Sauða-Úlfsson og þeir bræður Guttormur af Reini Ásólfsson og Óttar balli og fjöldi annarra höfðingja. Og snerist undir þá bræður nálega allur lýður og allra helst fyrir þess sakar að faðir þeirra var kallaður heilagur og var þeim svo land svarið að undir engan mann annan skyldi ganga meðan nokkur þeirra lifði sona Haralds konungs.

Saga Inga konungs og bræðra hans

Ættfræðisíða Systu

Nafnaskrá