21. Desember

Smelltu á myndina til að sjá hana í stærri og betri útgáfu!

Smelltu á myndina til að sjá hana í stærri og betri útgáfu!

Í dag er fimmtudagurinn 21. desember 2006.

Í nótt kom Gluggagægir til byggða. Hann var hér forðum daga þjófóttur mjög og notaði það að kíkja inn um gluggana til að athuga hvað inni væri vert að stela. Næstu nótt kemur Gáttaþefur til byggða.

Lag dagsins er: Bjart er yfir Betlehem

Að ógleymdu: Við kveikjum einu kerti á

Hvað kallar þú Jólasvein sem er með eyrnahlífar?
Hvað sem þú villt, hann heyrir ekki í þér!

Sálmur 83 - Dýrð sé Guði' í hæstu hæðum 

Dýrð sé Guði' í hæstum hæðum, 
himinn syngur fögrum hljóm. 
Mannkyn, hrært í innstum æðum, 
undir tak með lofsöngs róm. 
Allt Guðs speki, miskunn, mátt 
mikli, göfgi, prísi hátt. 
Dýrð sé Guði' í hæstum hæðum. 
Hrósi jörð hans ástargæðum. 

Ef þú ekki undrast, maður, 
ástar Drottins vermist yl 
og í auðmýkt gjörist glaður, 
Guðs svo elsku finnir til. 
hversu máttu' hans mildi þá 
maklegt þakkaroffur tjá 
og með engla lofsöng lýsa 
líkn vors Drottins, þakka' og prísa. 

Dýrð sé Guði' í hæstum hæðum, 
hann gaf soninn föllnum mér. 
Mannkyn hrært í innstum æðum, 
aldrei gleym því veitti' hann þér. 
Almátt, speki' og elsku þá 
allt mitt líf víðfrægja má, 
uns ég Guði' á himnahæðum 
hef upp lof með englakvæðum.

←← →→

Jólasíða Systu    Jóladagatalið    Jóladagarnir