Jafningur eða uppstú

50 g smjörlíki 

50 g hveiti 

1 l mjólk 

1/2 tsk. salt 

1-3 msk. sykur 

ögn hvítur pipar

Bræðið smjörlíkið í potti, hrærið hveitinu saman við, þannig að úr verði smjörbolla. Bætið mjólkinni varlega í og hrærið uns kekkjalaust. Látið sjóða í nokkrar mínútur og hrærið vel á meðan. Kryddið með salti, sykri og pipar.

Borið fram ýmist sem sósa eða soðnar karteflur settar útí og borið með t.d. hangikjöti.

Jólasíða Systu 8 nóvember 2001, Jólamaturinn

Jólakrækjur