Braut-Önundur Yngvason

Önundur Yngvason tók konungdóm í Svíþjóð næst á eftir föður sínum. Um hans daga var riður góður í Svíþjóð og varð hann mjög auðugur af lausafé. Önundur var allra konunga vinsælastur. Endalok hans urðu þau að hann varð fyrir skriðu af grjóti og leir í þröngum fjalladal og með honum fjöldi manna.

 
Faðir hans var Yngvarr Eysteinsson
 
Sonur hans var:
          a) Ingjaldur illráði, konungur.
 
Svíþjóð er markland mikið og liggja þar svo syðimerkur að margar dagleiðir eru yfir. Önundur konungur lagði á það kapp mikið og kostnað að ryðja markir og byggja eftir ruðin. Hann lét og leggja vegu yfir eyðimerkur og fundust þá víða í mörkunum skóglaus lönd og byggðust þar þá stór héruð. Varð af þessum hætti land byggt því að landsfólkiðvar gnógt til byggðarinnar. Önundur konungur lét brjóta vegu um alla Svíþjóð, bæði markir og mýrar og fjallvegu. Fyrir því var hann Braut-Önundur kallaður. Önundur konungur setti bú sín í hvert stórhérað á Svíþjóð og fór um allt landið að veislum.

(Hákonar saga hreðabreiðs)

Ættfræðisíða Systu 2 janúar 2001

Nafnaskrá