Íslenskt þjóðlag
Með
gleðiraust og helgum hljóm
þig herra Jesú Kristi
heiðri fagnandi og hvellum róm
hópur þinn endurleysti.
Úr himna dýrð þú ofan stést
á jörð til vor því sunginn best
sé þínu nafni sóminn.
Það von og fögnuð góðan gaf
gjörvallt mannkynið syndum af
að frelsa ertu kominn.