Jónína Guðrún Sigurðardóttir
![]()
Jónína Guðrún Sigurðardóttir, var fædd 1 júní 1862 í Otradal Arnarfirði, og dó 7 maí 1942. Jónína var eina dóttir hjónanna Sigurðar Péturssonar og Amalíu Gísladóttur, enda dó móðir hennar skömmu eftir fæðingu Jónínu.
Hún giftist 15 mars 1900 Njáli Sighvatssyni, börn þeirra:
a) Sigríður Amalía, f. 18 október 1900.
b) Þórður Guðni, f. 10 janúar 1902
c) Ólafur, f. 14 apríl 1903
Jónína og Njáll hófu búskap á Tjaldanesi í Auðkúluhrepp 1899 og bjuggu þar til 1904, þá bjuggu þau í þurrabúðinni Svalbarða. Árið 1913 ræðst Njáll sem ráðsmaður á Hrafnseyri. Þau voru húshjón að Ósi í Mosdal 1921-1927. Þau fluttu árið 1928 að Öskubrekku Ketildölum og voru þar í eitt ár. Þá flytjast þau til sonar síns Þórðar er þá hafði tekið hálfa Hrafnseyri á leigu en þaðan flytjast þau með Þórði og Daðínu í Stapadal 1937.
Ættfræðisíða Systu, 12 janúar 2001