Einu sinni var tígrisdýr sem hét Tígri og hann var duglegur
að hreyfa sig og borða hollan mat. Alltaf á morgnana fékk hann sér epli og
banana.
Þegar hann var búinn að borða morgunmatinn, fór hann út í
búð fyrir mömmu sína til að kaupa góðan og hollan hádegismat. Tígri keypti
jarðaberja jógúrt og mjólk því það var það besta sem hann fékk.
Þegar Tígri var búinn að fara með matinn heim fór hann að
gá hvort vinir hans væru komnir á fætur. Því Tígra langaði til að leika sér
í hafnarbolta og í hafnarbolta þurfti fleiri en einn.
Fyrst fór hann til Rebba refs, Rebbi var vaknaður og
kominn á fætur hann vildi endilega koma í hafnarbolta því hann var svo
fljótur að hlaupa. Svo fóru Tígri og Rebbi til Kalla kanínu og hann var líka
tilbúinn að fara að leika sér.
Þegar þeir voru að fara á völlinn hittu þeir Finna fíl,
Finni spurði þá hvert þeir væru að fara, Tígri svaraði því til að þeir væru
að fara að leika sér í hafnarbolta, Rebbi spurði Finna hvort hann vildi ekki
bara koma með þeim.
Finni sagði að hann væri svo feitur að hann gæti ekki
spilað hafnarbolta. Þá sagði Rebbi að hann gæti þá bara horft á leikinn hjá
þeim.
Þegar hinir voru búnir að leika sér í smá stund langaði
Finna að vera líka með, og þá var sko gaman hjá þeim öllum fjórum,áður en
þeir vissu af var kominn hádegismatur.
Þegar þeir voru að fara í matinn sagði Finni að hann
myndi bíða eftir þeim á vellinum, hann ætlaði að borða nammið sitt í staðin
fyrir hádegismat, en þá sagði Tígri að það væri ekki hollur matur og bauð
Finna að koma heim með sér og fá jarðaberja jógúrt og mjólkur glas.
Finni sagði að það væri fínt því að hann borðaði hvort
sem er alltof mikið nammi og það væri ekki gott ef maður ætlaði að verða
hafnarbolta spilari, honum fannst sko hafnarboltinn vera svo skemmtilegur.
Síðan fóru þeir allir heim að borða, en á meðan þeir voru
að borða matinn fór að rigna.
Svo Tígri og Finni fóru bara að lesa krakkablað DV og
leysa gáturnar, það var líka gaman.
Um fjögur leitið hætti að rigna og Tígri spurði Finna
hvort hann vildi ekki koma út að skokka. Finni sagði að það væri góð
hreyfing fyrir hafnarboltahetjur. Þeir skokkuðu til Rebba og Kalla og spurðu
þá hvort þeir vildu ekki koma út að skokka líka.
Rebbi og Kalli sögðu Já það viljum við gjarnan gera. Svo
þeir félagar skokkuðu heila átta kólómetra, mikið var Finni fíll orðinn
þreyttur þegar þeir komu heim rétt í tæka tíð fyrir kvöldmat.
Vinirnir kvöddust og fóru hver til síns heima að borða.
Finni fíll var svo þreyttur að hann sofnaði ofan í
diskinn sinn. Tígri borðaði kvöldmatinn sinn, tannburstaði sig og var
sofnaður fyrir klukkan átta, ánægður með hvernig dagurinn hafði verið.
Tígra dreymdi að Finni fíll væri hættur að borða
nammi og stundaði íþróttir á fullu og væri kominn í Íslenska landsliðið í
hafnarbolta og hann væri besti leikmaðurinn.
Tígrisdýr úti að skokka,
lék sér við að hoppa.
Þar til hann varð lúinn,
og nú er sagan búinn.