Linux/NT póstmiðlarar og ORBS (Open Relay Behaviour-modification System)
ORBS er gagnagrunnur yfir póstmiðlara sem eru opnir gagnvart misnotkun þriðja aðila og er aðgengilegur um DNS-kerfið.
Þeir póstmiðlarar sem eru skráðir í ORBS eru með öryggisvandamál sem leyfir hverjum sem er að tengjast þeim til að senda tölvupóst.
Öryggisvandamálið felst í því að þeir sem vilja senda þúsundir og jafnvel tugþúsunda skeyta í auglýsingaskyni geta notað þessa miðlara á kostnað eigenda þeirra.
Sumir póstmiðlarar sem keyra á NT geta ekki hindrað misnotkun, t.d. Eureka Silver, aðrir þurfa uppfærslur (sem kosta) eins og t.d. MS Exchange 5.0 þarf að uppfæra í Ver. 5.5
Linux notar Sendmail og nýrri útgáfur eru með lokað á þetta sjálfgefið, en eldri útgáfum af Sendmail má breyta í uppsetningu, eða uppfæra (ókeypis).
Í ORBS eru að jafnaði um 40.000 póstmiðlarar skráðir gallaðir en á öllu Internetinu eru a.m.k. 2.000.000 póstmiðlarar (um 2% gallað).
Tvö prósentin eru ábyrg fyrir 90% af ruslpósti á Internetinu!
Af þessum tveimur prósentum er NT með stóra hlutdeild - sjá næstu síðu...