Einokunarverslunin aflögð?
Landssíminn er með dýrustu símafélögum í Evrópu hvað varðar leigð sambönd, segir Björn Davíðsson kerfisstjóri hjá Snerpu á Ísafirði.
Landssími Íslands hf. (LÍ) er með virkan einkarétt á fjarskiptasamböndum á Íslandi og til og frá Íslandi. Þessi fjarskiptasambönd hafa verið byggð upp á 90 ára tímabili á meðan LÍ naut lögbundins einkaréttar á öllum slíkum samböndum. Undanfarið hafa Ólafur Þ. Stephensen og fleiri starfsmenn LÍ farið mikinn á síðum Mbl, fyrst með greinaskrifum þar sem starfsemi LÍ er ,,kynnt" eins og t.a.m. breiðbandsþjónustan og ATM-netið. Þessum skrifum hefur verið svarað með gagnrýni þeirra sem nota þjónustu LÍ, t.d. forsvarsmanna Íslenska útvarpsfélagsins, mér og nokkrum fleirum. Fyrst um sinn var gagnrýni, t.d. á breiðbandskerfið látið ósvarað en Ólafur stóðst ekki mátið þegar farið er að minnast á okrið á leigulínum og lágt þjónustustig háhraðanetsins.
Að vísu verður það að segjast Ólafi til hróss að hann vogaði sér ekki að mótmæla í neinu fullyrðingum mínum um lélegt háhraðanet LÍ og því hvernig upplýsingatæknifyrirtæki á landsbyggðinni eru neydd til að taka þátt í því. Hann reyndi af mikilli lagni að draga athyglina frá aðalatriðum gagnrýninnar og þóttist vera að leiðrétta einhvern misskilning sem alls ekki er fyrir hendi!
Víst er LÍ fyrir ofan meðaltalið!
Ólafur hefur síðan andsvör sín á millifyrirsögmininni ,,Verð leigulína vel undir Evrópumeðaltali". Ég ætla helst ekki að sóa hér plássinu undir fleiri tilvitnanir úr penna Ólafs en þetta er alrangt! Þróunin hjá símafélögum um allan heim hefur verið sú að lækka kostnað sinn í fjarskiptasamböndum með því að auka afkastagetu t.d. fyrirliggjandi ljósleiðara með því að stækka endabúnað. Þetta var m.a.s. LÍ að gera nú sl. ár þegar eitt par af fimm í ljósleiðarahringnum var stækkað í burðargetu úr 565 mbit/s í 2500 mbit/s, þ.e. fimmfaldað. Um leið hafa þessi símafélög verið að lækka gjaldskrár sínar jafnt og þétt. Landssíminn boðar nú gjaldskrárbreytingar (sem eru enn vandlega varðveitt leyndarmál), þó ekki allar til lækkunar. Þeir sem hafa verulega hagsmuni af því að skipta við LÍ vegna fjarskiptasambanda eru búnir að bíða óþreyjufullir eftir lækkunum, enda nokkur ár síðan LÍ gaf fyrst í skyn að þeirra væri hugsanlega að vænta. Í yfir 90 ára sögu LÍ hefur gjaldskrá Símans vegna fjarskiptasambanda innanlands aldrei lækkað (!) á meðan til þess er tekið erlendis að það sé langur tími ef gjaldskrá hefur ekki breyst sl. 5 ár. Ég leyfi mér að segja að verðstefna LÍ í þessum málum er jafnmikið krabbamein í þjóðlífinu og einokunarverslun Dana var á sínum tíma og finnst ekki kveðið fast að orði.
Í tilefni af ofangreindri fullyrðingu ákvað ég að leita mér heimilda um verð á leigulínum erlendis og byrjaði á að leita til Noregs. Mér brá svo mikið við að sjá að LÍ var allt að fjórum sinnum dýrari að ég fékk Ólaf sjálfan til að reikna út verðmuninn. Í ljós kom að á stystu línunum er Telenor aðeins dýrari en á langlínum var munurinn gríðarlegur. Ólafur fullyrti hinsvegar í tölvupósti til mín að Telenor væri með ódýrustu símafélögum í Evrópu og eftir að hafa skoðað nánar verð í helstu Evrópulöndum get ég verið sammála því. En þegar borið er saman verð á þeim löndum sem eru í meðfylgjandi töflu kemur ekki aðeins í ljós að LÍ er ofan við meðaltal, heldur eru tvöfalt fleiri lönd með lægri gjöld heldur en hin sem eru með hærri gjöldin. Svo vil ég sjá Ólaf sannfæra mig um það að það sé ódýrara að leggja ljósleiðara um Noreg en Ísland, því að eins og hann sagði jú sjálfur skal verðið taka mið af kostnaði.
Fagnar samkeppni?!?Enn klykkir Ólafur út með tuggu LÍ um að fyrirtækið fagni samkeppni. Ekki hefur þetta verið sýnt í verki þeim sem reka virðisaukandi fjarskiptaþjónustu í samkeppni við LÍ. Fullyrðingu minni um að LÍ mismuni viðskiptavinum gífurlega þegar hentar, svarar Ólafur á síðum Mbl. nú 18. maí þegar hann svarar þar gagnrýni rektors í Bifröst um hátt verð fyrir gagnasambönd, með því að skólanum standi til boða ,,sérstök kjör" þar sem LÍ vilji ,,styrkja sérstaklega menntun í landinu". Hvernig eiga aðilar eins og t.d. Tölvuþjónustan á Akranesi að geta átt í samkeppni við LÍ um að tengja Bifröst ef Bifröst fær ,,sérstök kjör" sem TA fær ekki! Skv. þessu er klárt mál að LÍ hefur ekki einu sinni flett upp í orðabók eftir samkeppni!
Hvernig væri að LÍ sýndi þó allavega í verki að ef hann fagnar samkeppni, að gefa þá upplýsingatæknifyrirtækjum tækifæri á að tengjast umheiminum á sanngjörnu verði. Ég bendi á að þrátt fyrir að verð fyrir leigð gagnasambönd í Norður Ameríku hafi verið margfalt lægra en í Evrópu að þá hafa símafélög þar skilað góðum hagnaði vegna þess að þar er lögð áhersla á að ná viðskiptum með því að nota burðargetu fjarskiptasambandanna. Ef LÍ lækkaði almennt verð niður í svipað, þá má bóka að þau viðskipti sem hafa verið flutt í miklu magni frá Evrópu til Bandaríkjanna vegna mikils kostnaðar í Evrópu myndu án efa fara að skila sér hingað og þar er um verulega fjármuni að ræða. LÍ á að hafa þann metnað að hér í miðju Atlantshafinu sé eftirsóknarvert fyrir allan heiminn að hafa vefsetur sín og ef menn klifra niður úr fílabeinsturninum þá er enginn vandi að sjá þetta. Ísland gæti verið nafli alheimsins í upplýsingaiðnaðinum, bara ef menn þora í samkeppni á alþjóðlegum markaði. Einokunarverslunin væri þá þar með aflögð.
Ísafirði 19. maí 1999
Björn Davíðsson.